Já ble. Jæja það er síðasta blogg ársins (held ég) og það mér
hefur hlotnast sá heiður að skrifa það. Njótið vel
Ár. Hugtak notað yfir langt tímabil, samsett úr 12 mánuðum, 52
vikum, 365,25 dögum, 8.766 klst, 525.960 mínútum og 31.557.600
sekúndum. Árið 2006, hugtak bundið við 8758 liðnar klst auk 49
mínútna (þegar þetta er skrifað) og 7 ókomnar klst og 11 mínútur
(einnig þegar þetta er skrifað). Það er lítið mál að skilgreina
árið eins og tölfræðilega einingu eða aftætt hugtak, en þegar maður
minnist einstaks árs þá ætti maður að fara í nostalgíukast, rifja
upp eitthvað í minningunni, finna eitthvað bragð, einhvejra lykt,
einhverja snertingu sem þú tengir að eins við einstakt ár eða
tímabil innifalið í árinu. Og hvað er ár þá annað en minningar og
reynsla? Ekkert (ok jú það er smá tölfræði líka). Árið 2006 var (og
er enn þegar þetta er skrifað) einstakt í sinni röð og kemur aldrei
aftur, því er ekki úr vegi að rifja upp hvað hefur gerst á árinu
sem er að hverfa.
Nota bene: Hér verður að mestu fjallað um viðburði í mínu
eigin lífi og heimsviðburði, ef ykkur finnst þið snubbuð á einhvern
hátt vinsamlegast hafið samband á milli 16 og 18 á
miðvikudögum.
Efnisyfirlit:
Kynning
Efnisyfirlit
Upprifjun á mínu ári
Viðurkenningar og Óviðurkenningar
2007?
Þakkir
Upprifjun á mínu ári
Byrjum þá á því efni sem að ég veit hvað
mest um (eða það vona ég að minnsta kosti) en það er upplifun mín
þetta ágæta ár. Ég hef persónulega staðið í eigin fætur þessa 365
daga til þess að færa ykkur þær fregnir sem ég hef fram á að færa.
Ég ætla að reyna eftir bestu getu að tiltaka hvern mánuð fyrir sig
á stuttan og frambærilegan hátt
Janúar:
Árið 2006 hófst fyrsta Janúar samkvæmt okkar ágæta tímatali
(en hófst 27 dögum seinna samkvæmt því kínverska). Önnur systir mín
varð strax, þann 2. janúar, 1 árs, varla skriðin úr egginu frá
mínum bæjardyrum séð en strax orðin heils árs gömul. Stuttu seinna,
nánar tiltekið þann 10. janúar, lést svo langamma mín, 79 ára að
aldri, á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi, hennar er sárt
saknað. Svo var það einnig mánuðurinn þar sem maður heiðraði Gettu
Betur keppnir fyrst með nærveru sinni, og ef ég man rétt þá fór ég
fyrst á MR keppni, en síðan á tvær MH keppnir, ekki að það skipti
neinu máli, en þó gerðist þetta allt í sama mánuðinum. Þarna lagði
maður líka í nammibindindi sem leið fljótt undir lok (en meira um
það í febrúar).
Afmæli:
Aþena systir – 1 árs (2. jan)
Afi Sigurjón – 63 árs (5.
jan)
Hildur – 16 ára (9. jan)
Skemmtilegar staðreyndir:
-
Í bloggi 9. janúar tiltek ég þrennt sem mun
gerast á árinu, tvennt af því rættist
-
Í bloggi 24. janúar er ég harðákveðinn að
fara á Brokeback Mountain en það á þó enn eftir að rætast úr
því.
Febrúar:
Snemma í Febrúar tók maður á harðastökk í ökunámið og þó maður
hafi lagt galvaskur í þetta í byrjun þá var þetta þó látið sitja á
hakanum slatta af tíma í viðbót og vel það. Svo fékk maður
æfingarleyfið og þó maður vildi að það hefði verið nýtt til fulls
þá var maður of latur til þess, því miður. Febrúarmánuð þennan féll
maður svo sælla minninga í nammibindindinu eftir 36,5 daga, það
svosem var óhjákvæmilegt þar sem fyrsta samvinnumanneskja mín í því
féll eftir 3 daga og sú næsta lét mig átta mig á því að þetta væri
svo að segja tilgangslaust, sem ég féllst síðan á, húrra við! Svo
voru þarna líka lagningadagar MH sem voru einkar skemmtilegir.
Einnig atti ég kappi í lengstu Monopoly keppni sem ég hef komið
nálægt.
Afmæli:
Svana frænka – 33 ára (6. feb)
Þórhildur systir – 5 ára (21.
feb)
Skemmtilegar staðreyndir:
-
Í bloggi 7. febrúar úthúða ég Sirkus sem
rusli í 4. veldi, þarna hljóp ég þó heilmikið á mig því eins
og staðan er núna er stöðin jú ennþá smá svona trashy en hún
hefur þó bætt sig töluvert og horfi ég vel á
hana
Mars:
Flest það sem hér birtist hef ég rifjað upp með því að skoða
gömul blogg og því fátt hér sem hefur ekki verið sagt áður, þegar
ég lít á eina bloggið mitt í mars þá sé ég ða ég hef stimplað hann
einn tíðindaminnsta mánuð lífs míns og ég verð því líklega bara að
reikna með því að það sé satt. Þarna var ég samt að byrja að velta
fyrir mér bassakaupum sé ég og stríðið milli MH og MR átti hug minn
allan að því er virðist. Fátt að segja um þennan mánuð svona
almennt. Jú svo var úrslita keppni MH og MR í morfís þann 31., þar
sem MR vann.
Afmæli:
Snærós frænka – 10 ára – (3. mars)
Guðrún Sunna stjúpsystir – 11 ára (9.
mars)
Inga Þóra frænka – 41 árs (18.
mars)
-
Í bloggi 28. mars virðist ég vera voðalega
heltekinn af því hvernig skólahroki tekur gjarnan á sig mynd,
mér virðist á þeim texta sem þar er að ég hafi verið eitthvað
voðalega bitur út í aðra skóla (MR gæti ég trúað) og reyndi
að láta það virðast jafn hlutlægt og mögulegt er við slappan
árangur
Apríl:
Nú það held ég að ég geti með sanni sagt að í apríl hafi verið
páskar, og ef það voru páskar í apríl þá þýðir það að í Apríl hafi
ég skotist í bústað ásamt gamalgrónum vinum (sem eru í stafrófsröð
Árni, Berglind, Dabbi og Tommi). Ég skrifaði aldrei neitt af viti
um þessa ferð, en hún var mér virkilega ánægjuleg, þarna var
spilað, mikið hlegið, spilað á gítara í náttúrunni, brugðið á leik
og sungið. Reyndar var dáldið leiðinlegt að Árni blessaður
veiktist, en það skemmdi þó ekki mikið, næst ferð verður þá bara
enn betri (ef við reiknum með að allir verði hressir). Það er held
ég það eina sem ég rifja virkilega upp frá Apríl því að það sem ég
hef ritað á síðunni minnir mig eingöngu á það.
Afmæli:
Maríanna frænka – 10 ára – (23.apríl)
Skemmtilegar staðreyndir:
-
Kristján skrifaði þann 11. apríl blogg sem
gæti, að miklu leyti, vísað til þess að hann væri kominn á
sýruna. Það var þó ekki svo og var þetta aðeins tilraun til
að breyta forminu á bloggum, og segir hann nú að það hafi
verið mislukkuð tilraun.
Maí:
Já Maí, tími vorprófa, komandi sumarfrís, blómálfa og hippa.
Maí var hressandi mánuður, þar keypti ég minn fyrsta bassa og
bassamagnara, báða nota ég enn þó magnarinn sé nú annar af tveimur.
Innskot: Næsti bassi gæti komið í hús í febrúar á komandi
ári ef allt fer eins og áform eru. Í Maí pirraði ég mig líka all
svakalega yfir Eurovision keppninni, og sé ég núna að ég hef tekið
þetta gífurlega alvarlega, og finnst mér það heldur kjánalegt núna.
Svo tók ég aftur upp vinnu við byrjun sumars í MS og hélt henni út
fram að lokum sumars, til þess að eiga smá skotsilfur við lok
sumars. Nýr vinnutími tók líka við og mætti ég klukkan 7 bróður og
systurpart sumars.
Afmæli:
Amma Anna – 58 ára – (11. maí)
Kiddi – 17 ára – (11. maí)
Skemmtilegar staðreyndir:
-
Kristján fékk þann ágæta heiður að eiga ljóð
dagsins á ljóð.is, geri aðrir betur!
-
Í bloggi 13. maí er ég að óskapast yfir
stjórnmálaflokkunum, og geri ég þar PPS þar sem ég skrifa um
unga sjálfstæðismenn, þarna reyndust þó vera ungir
samfylkingarmenn og ljáðist mér alltaf að leiðrétta
það.
Júní:
Já vinnan átti hug minn og hjarta í Júní mánuð, mætti jafnvel
stundum klukkan 6 á mánudögum og vann 4 helgar í röð, enn þá var
líka full mikið komið og maður reyndi að fara að hægja á sér á
seinni mánuðum. Ekki mikið sem hægt er að segja um Júnímánuð vegna
lítilla heimilda þaðan, en þó minnist ég að þann 12. júní fór ég á
mína fyrstu almennilegu tónleika með hinum mikla meistara og
aðallagahöfundar Pink Floyd, Roger Waters. Þessir tónleikar sitja
enn í minningunni sem eitt það besta sem ég upplifði á þessu ári.
Svo held ég að Júní hafi verið tími kvikmyndanna þar sem mér tókst
að fara 5 sinnum í bíó þann mánuðinn, en þó var margt um vonbrigði.
Já og svo var það klippingin sem ég fékk mér, hárið enn sítt, en þó
snyrtilegra, þetta olli miklum fögnuði hjá mörgum.
Afmæli:
Pabbi – 36 ára – (6. júní)
Skokrokk – 1 árs – (19.
júní)
Skemmtilegar staðreyndir:
-
Skokkrokkarar virðast hafa tekið óopinbert
frí í júní því ekkert var skrifað eða skraflað þann
mánuðinn.
-
Júní var mánuðurinn sem ég uppgvötaði
svitabönd
Júlí:
Já þið segið það, Júlí blessaður. Satt að segja er júlí mjög
mikið í móðu. Lítið skrifaði ég um þann mánuð á árinu og man ég því
minnst af því sem þar gerðist, en þá þarf þó ekki snilling til að
álykta að þarna hafi verið unnið mikið og meira en áður og það hafi
skilað sér í feitum launatékka. Já og svo rétt rúmum mánuði eftir
fyrstu tónleikana mína þá voru það fystu útitónleikarnir, á
Klambratúni 31. júlí. Þar lék stórsveitin Sigur Rós við mikinn
fögnuð og stóðu þeir sig stórvel, þeir kunna svo sannarlega að
spila live. Upphitunin var hins vegar ekki upp á marga fiska,
furðusveitin Amína spilaði þar og hljómaði það allt eins og suð
fyrir mér.
Ekkert meira að gerast í júlí, bara sama gamla.
Afmæli:
Amma Ingigerður – 62 ára – (12. júlí)
Finnur – 17 ára – (14. júlí)
Mamma – 36 ára – (19. júlí)
Berglind – 17 ára – (19.
júlí)
Kristján – 18 ára – (30.
júlí)
Skemmtilegar staðreyndir:
-
Í júlí minntist ég á heimsmeistarakeppnina og
var fjarri því að vera sannspár, því eins og heimur allur
veit þá bar hina leiðinlega fótboltaþjóð Ítalía sigur úr
býti, en þeirt voru vel að því komnir þá ég hafi dissað þá
smá.
-
Í lokaorðum blog 7. júlí minnist
ég á ostrur, ég hef aldrei borðað ostrur.
Ágúst:
Þegar ég var yngri þá hefði Ágúst tvímælalaust verið langbesti
mánuðurinn. Af hverju, ja því að þá á ég afmæli. Í ár var Ágúst
sennilega besti mánuðurinn en ekki því ég átti afmæli, nei. Heldur
vegna þess að þá rættist langþráður draumur, að skreppa til London
yfir helgi með Dabba. Sú ferð var gífurlega skemmtileg, tveir
drengir einir á báti í framandi stórborg í fyrsta sinn. Þessir 4
dagar voru enga stund að líða og ég myndi ekki hugsa mig tvisvar um
áður en ég færi aftur. Reyndar var smá vesen vegna fyrirhugaðra
hryðjuverka daginn sem við fórum út og vorum við heppnir að missa
ekki af fluginu okkar en það fór allt vel. Svo lauk maður vinnunni
þetta sumar og skildi sæll við sitt tilbúinn að takast á við
skólan, sem hófst enda stuttu seinna.
Afmæli:
Ég (Pétur) – 17 ára – (9. ágúst)
Hrafnhildur frænka – 15. ára – (20.
ágúst)
Skemmtilegar staðreyndir:
-
Ég og Dabbi lentum báðir í því að litið væri
á okkur sem innfædda af ferðamönnum í London
-
Ég tók minnst 30 myndir af Parliment húsinu
og Big Ben
September:
Já í september hélt maður uppteknum hætti í skólanum þó maður
væri kannski svoldið latur eftir langt og hressandi sumarfrí. Ég er
ekki frá því að ég hafi farið í ökuskóla 2 einhvern tíman í
september... nei það er bull samkvæmt bloggunum mínum, þar stæri ég
mig af því að hafa ekki enn lokið Ö2 eins og ég orða það ljóðrænt.
Gettu Betur prufurnar voru hins vegar pottþétt haldnar í september
og gengu þær fram úr vonum þó eins og ég hef áður tiltekið þá stóðu
þær ekki jafnfætis með sjálfum gettu betur kempum MH. Enda væri
líka e-ð skrítið ef svo færi. Kritsján hins vegar stóð mjög nálægt
því og fékk þar enn eina rósina í hattinn (eða Arsenal húfuna
sína).
Afmæli:
Ási frændi – 31 árs – (3. sept)
Árni – 17 ára – (5. sept)
Tommi – 17 ára – (16. sept)
Davíð the elder – 58 ára (24.
sept)
Dabbi F – 17 ára – (26.
sept)
Skemmtilegar staðreyndir:
-
Í eina blogginu mínu þennan mánuð minnist ég
enn og aftur á það hvað það sé asnalegt hjá mér að vera að
rifja upp liðna atburði, sennielga í 3 skiptið á árinu, þar
sem allir vita þetta fyrir, en samt læri ég ekki af
reynslunni
-
Þegar ég bið fólk um að kommenta um eitthvað
ákveðið þá gerir það það ekki
Október:
Já í október þá stendur hæst að ég breytti síðunni í núverandi
útlit og fannst mér ég takast vel til sama hvað öðrum finnst, enda
eru annarra skoðanir ekki mínar og því er mér fullkomlega sama og
geri það sem mér sýnist.. neineio smá sprell ég elska ykkur öll og
vona að útlitið sé ekki of langt gengið. Nú og svo voru ómerkilegri
fréttir þær að ég kláraði Ö2 (for real this time) og svo nældi ég
mér í eine kleine skriftligt akenhaken (öku) próf. Mér sýnist svo á
á öllu að ég hafi keypt nýja magnaran minn þennan mánuðinn og
reyndist það vel því þá byrjuðum við strákarnir líka að æfa smá,
virkilega ánægjulegt það allt saman, og varir enn. Nú svo valdi
maður líka þarna fyrir næstu önn skólans. Þar tók ég þá djörfu
ákvörðun að geyma íslenskuna ögn og leggja meira upp úr ensku eina
önn. Vona að það borgi sig.
Afmæli:
Kristófer frændi – 5 ára – (5. okt)
Kjartan – 31 árs – (5. okt)
Hrafnkell frændi – 4 ára – (22.
okt)
Skemmtilegar staðreyndir:
-
Ég haf aldrei hent eggjum í hús, eða einu
sinni hent eggjum. Einu sinni fékk ég samt Dabba til að
drekka hrátt egg gegn greiðslu, hann kláraði það ekki alveg
og fékk því aðeins tíkall.
-
Viðlíkingar og myndmál er ekki mín sterka
hlið eins og kemur glögglega fram í bloggi 29.
október.
Nóvember:
Nóvember er rétt svo farinn að kólna og því ætti hann að vera
ferskur í minninu. Og ég minnist þess strax að þennan mánuð
öðlaðist ég hinn merka titil: bílprófshandhafi til 2 ára því þá
þarf að endurnýja það með hæfnisprófi. Þetta var auðvitað stór
dagur í lífi mínu og ég vil segja að ég sé betri maður fyrir vikið.
En það er ekki satt þetta breytir nákvæmlega ekki neinu fyrir utna
það að nú hef ég leyfi til að nota hættulegt verkfæri án yfirumsjón
annarra. Og síðustu dagar 3. annar runnu auðvitað sitt skeið og
manni tókst svona hálf partinn að lifa það af.
Afmæli:
Erla – 17 ára – (9. nóv)
Axel frændi – 38 ára – (10.
nóv)
Rebekka frænka – 8 ára – (14.
nóv)
Skemmtilegar staðreyndir:
-
Enginn kommentaði á bloggið mitt 31. nóvember
og ég tek það sem merki um að ég þurfi að bæta skriftir mína
(þó það hafi verið einstaklega klént blogg)
-
Ég minnist ósjaldan á vind í kynningum á
bloggunum mínum, og það er óviljandi.
Desember:
Jæja þá er þessi upptalning að líða undir lok á síðasta mánuði
ársins, la moin de noël eins og Frakkar myndu segja. Þessi mánuður
er búinn að vera hin ágætasta skemmtun, þótt dapurlegir atburðir
hafi átt sér stað sem ég mun ekki tiltaka hér. Prófin gengu yfir
þennan mánuðinn og ég stóðst þau einnig í þetta skiptið, enn hefur
ekki tekist að bola mér úr skólanum sem er mér svo kær. Svo fór
maður enn og aftur að vinna, en þó hefur maður ekki þurft að mæta
klukkan 7 (nema einu sinni). Gjafakaupin, kortaskrifin, baksturinn
og skreytingarnar áttu hug minn mestan framan af mánuðinum. Svo tók
afslappið við. Að pakka, dreifa gjöfunum, borða konfekt og góðan
mat, opna hinar mörgu góðu gjafir (já btw takk fyrir allir saman)
og leika sér e-ð. Svo er í kvöld hápunktur ársins, það er að segja
þegar það fellur í aldanna skaut og nýtt tekur við, ekki laust við
að maður hlakki svoldið til næsta árs miðað hvernig þetta er búið
að vera.
Afmæli:
Sigga – 29 ára – (25. des)
Ingi frændi – 53 ára – (30.
des)
Skemmtilegar staðreyndir:
-
Listinn sem hér fór á
undan er svo langt frá því að vera tæmandi að það er næstum
því hlægilegt, þarn avantar að minnast á alla fjölskyldu og
vinahittingana, spilakvöld, fulltfullt af rúntum (svo ekki sé
minnst á bílprófin), bíóferðir sem ná næstum 3. tug. Svo ekki
sé minnst á alla þá ótal hluti sem ég man ekki og legg ekki í
að rifja upp. Væntanlega eru þarna margir atburðir sem ég hef
ekki tiltekið nákvæmlega og ég biðst velvirðingar á
því
-
Margar skemmtilegar staðreyndir eru alls ekki
skemmtilegar
-
Afmælisdagarnir eru birtir með fyrirvara um
fávisku í þeim efnum, vinsamlegast ekki hata mig (og ef ég
gleymdi ykkur, þá láta mig bara vita)
-
Algengasta ásláttarvillan mín er líklega að
skrifa einhvejrir og að setja n sitt hvoru megin við
enda orða, samanber fávitnin
-
Ég bloggaði 15 sinnum í ár sé þetta blogg
tekið með og Kristján 17 sinnum
-
Framhaldssagan er ennþá bara með einn hluta
þrátt fyrir að vera bráðum orðin árs gömul
-
Nú er komið nóg af þessu
Viðurkenningar og
Óviðurkenningar
Ég var svona að velta fyrir mér að skrifa mitt álit á hinum
ýmsustu heimsfréttum og fregnum en svo hugsaði ég með mér að ég
gæti lítið við það bætt sem ég hef ritað á árinu um hitt og þetta.
Því ætla ég bara að vinda mér strax í flokkinn Viðurkenningar og
Óviðurkenningar sem segir sig auðvitað sjálft að er svona eins
konar vefverðlaun á okkar vegum fyrir hitt og þetta. Reyndar
endurspeglar þetta flest allt mitt eigið álit en mér var falið að
skrifa þetta þannig ég held að öllum sé því sama þó svo sé. Ef fólk
er ósammála mér, og það væri ekki fyrsta skipti sem betur fer (það
hefur örugglega bjargað mörgum mannslífum) þá bið ég það að segja
sína meiningu hér á síðum vorum
Bestu skokkrokkblogg ársins:
Kristján: Avec, skrifað 31.
janúar
“og síðan þegar umræðuefni tímans var bara kapúdd, sagði Einar
bara sisvona: „Jæja, viljið þið sjá myndir af Guðmundi berum að
ofan í Póllandi?“ haha vá...”
Pétur: 13.05´06, skrifað 13.
maí
“Nú og frá hljóðfærakaupunum er aþð að segja að ég lagði kaup
á forlátan (ekki forljótan, baramp bamp tish)
rafmagnsbassa”
Verstu skokkrokkblogg ársins:
Kristján: ómægod, skrifað 11.
apríl
“ó já, eitt enn. Passið ykkur á kakóinu sem klifrar upp
stigagang á hálli Holtsgötu seint í nóvember.fimmtudaginn 4. verður
samt svaka partý á þriðju hæð.”
Pétur: 31.11´06, skrifað 31.
nóvember
“og hún er sko pökkuð dömur mínar og herrar, við erum að tala
um álíka pakkað og 16 kaþólikkar í hænsnabúri (nei ég er ekki
hræsnari)”
Gæsalappirnar bera með sér hápunkt eða lágpunkt bloggsins
eftir því hvort er talað um besta eða versta bloggið
Kvikmyndir ársins:
-
V for Vendetta – “Remember, remember the 5th
of November”
-
The Departed - “You got a nice
suit at home or do you like coming to work everyday dressed
like you're goin' to invade Poland?”
-
Munich – “We kill for our future. We
kill for peace.”
- Þetta er ekkert
mál – “There is no point in living, if you can’t do deadlift”
-
Pirates of the Caribbean 2: Dead Man’s Chest
– “Now where is that monkey, I want to shoot
something!”
Verstu kvikmyndir ársins:
-
Wolf Creek – “I was doing people a
service really, by shooting them. There's kangaroos all over
the place... like tourists.”
- Hostel – “I’m
the king of the swing!”
-
Eragon – “That's the spirit - one part
brave, three parts fool.”
- Superman Returns
– “Three things sell newspapers: tragedy, sex, and Superman.”
- The DaVinci Code
– “Yes, and the more penises you have, the higher your rank. Boys
will be boys!”
Leikir ársins:
-
We Love Katamari
-
Kingdom Hearts 2
-
Black
-
Canis Canem Edir
-
Buzz! The Music Quiz
Tónlistaruppgvötun ársins: (hérna er ekki endilega átt við
nýjar hljómsveitir)
Death Cab for Cutie, yndisleg tónlist
The Cranberries
Blur
Bestu kaup ársins:
Bassinn og magnarinn
Futurama
3rd Rock from the Sun
Verstu kaup ársins:
Öll jólagjafakaupin þar sem fólk átti hlutina fyrir
Vonbrigði ársins:
-
Allt of mörg dauðsföll í
umferðinni
-
Silvía Nótt í Eurovision
-
Plútó afnumin sem pláneta
-
Engin Chinese Democracy (þó hún lofi ekki
beint góðu)
-
Ekkert skokkrokklag
Hápunktar ársins
-
Londonferðin by far
-
Bústaðarferðin
-
Roger Waters í Egilshöll
-
Bílprófið
-
Hljómsveitaræfingar
Þetta er kannski ekki beint mikið, en þó það sem mér kemur
hvað helst til huga, jú og svo er það kannski setning ársins en hún
hefur verið tuggin oftar en einu sinni og oftar en
tvisvar
Sú setning er: ER DANMÖRK EKKI EVRÓPUBORG??? (lesist í
pirrings og æsingstón) þessi orð lét Davíð Finnbogason falla í
bústaðarferð vorri þegar spurt var um í hvaða evrópuborga e-ð væri
og hann og Tommi svöruðu Danmörk.
Þá held ég sé komið nóg af svo góðu í bili. Ef ykkur dettur
fleiri tilnefningar í hug þá endilega tiltakið þær og ég mun færa
þær inn. Ég er bara svo gífurlega hugmyndasnauður í
augnablikinu.
2007?
Já eftir ekki langan tíma verður nýja árið hringt inn og þá er
ekki úr vegi að spá örlítið í hvað það ár á að fara. Mér kemur
helst í hug 18 ára afmælisdagurinn sem þýðir að sjálfsögðu blóðgjöf
og tattoo. Svo er ég enn að vonast eftir að komast í
fallhlífarstökk fyrr eða síðar. Svo væntanlega verður einhver
utanlandsferð farin á árinu og hver veit nema önnur bústaðarferð
verði sett á laggirnar, maður veit ekki fyrr en reynir á. Eitthvað
á skólinn eftir að segja til sín bróðurpart árs og vinnan líka, svo
er aldrei að vita nema einhverjir góðir tónleikar verði í boði og
svo einhver hljóðfærakaup. Vona líka að við förum að verða betri
við æfingar, trúi ekki öðru. Svo er það auðvitað allar
bíóferðirnar, allur hittingurinn, hláturinn, gráturinn, afmælisboð
og sunnudagssteik. Maður getur vart beðið.
En áður en að því kemur verður maður að sprengja árið 2006
rækilega í hafsauga og vona að það komi ekki aftur til að bíta
mann, þó minningarnar verði alltaf til staðar.
Þakkir:
Já þetta er nú ekki flóknara en svo en ég vil þakka öllum sem
hafa gefið sig á tal við mig á árinu, verið mér til halds og
trausts, hlegið með mér og sungið og leikið með mér, öllum sem hafa
afgreitt mig og öllum sem hafa boðið mér góðan daginn. Já ætli
maður þakki ekki bara öllum alls staðar fyrir hvað svo se það
gerir. En auðvitað þakka ég fyrst og fremst minni kæru fjölskyldu
og mínum einstöku og frábæru vinum fyrir að vera alltaf þarna fyrir
mig og halda mér á jörðinni.
Fyrir hönd Skokkrokk vil ég þakka öllum sem lesa okkur og
leggja leið sína hingað reglulega sem og þeim sem slysast hérna
fyrir tilviljun. Við óskum öllum gleðilegs nýs árs og vonumst til
að vera enn meira í kringum ykkur á komandi ári.
Og þá er fátt annað eftir enn að segja (í síðasta sinn árið
2006)
Pétur out....
PS. Í öllum bænum ekki slasa ykkur í kvöld eða fara ykkur að
voða